Flugur

Söngvar og ljóðaþýðingar Magnúsar Ásgeirssonar

Leikin eru lög þar sem ljóðaþýðingar Magnúsar Ásgeirssonar koma við sögu, lög eftir sænska og íslenska höfunda. Anna Pálína Árnadóttir syngur Söng Fríðu, eða Í fyrsta sinn ég þig. Gunnar Guttormsson syngur tvö lög, annarsvegar Mansöngvarann og hinsvegar Ameríkubréfið. Einsöngvarakvartettinn syngur Kvæði um einn kóngsins lausamann. Lónlí blú bojs flytja Laugardagskvöld á Gili. Bubbi Morthens syngur eigin lög við kvæðin Eins og gengur og Bólivar. Páll Óskar Hjálmtýsson syngur lag Páls Torfa Önundarsonar við Enska manvísu frá 14. öld. Ólafur Þórarinsson syngur eigið lag við ljóð sem heitir Kapellan, Sigurboginn flytur lag Sigurðar J. Grétarssonar við kvæðið Regla og Lítið eitt flytja íslenska gerð ljóðsins Konungurinn í Thule eftir Göthe.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Birt

13. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,