Tónlistin að þessu sinni kemur úr nokkrum áttum. Fyrst eru þrjú lög eftir tónlistarfólk sem var í Vísnavinum á sínum tíma. Erna Hrönn Ólafsdóttir syngur lag og texta Bergþóru Árnadóttur sem heitir Einu sinni þú, Ingi Gunnar Jóhannsson syngur tvö frumsamin lög, annarsvegar Ferðalag, textinn eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og hinsvegar Tilfinning, texti eftir Sigmund Erni Rúnarsson. Sæmundur Haraldsson flytur ljóð eftir Dag Sigurðarson við undirleik norrænna tónlistarmanna sem leika lag eftir hann og Sigríður Thorlacius flytur tvö ljóð eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur en lögin eru eftir föður hennar Tómas R. Einarsson. Að lokum eru þrjú lög eftir Ísólf Gylfa Pálmason. Tvö þeirra eru eftir ljóð eftir föður hans Pálma Eyjólfsson og heita Morgunljóð Margrétar og Kveðjustund og þriðja lagið er Talað við barn sem Ísólfur samdi við ljóð Ingibjargar Björgvinsdóttur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.