Flugur

Ljóð eftir Kristján Fjallaskáld, Jóhannes úr Kötlum og Jón Helgason

Leikin eru lög við ljóð eftir Kristján Jónsson Fjallaskáld, Jóhannes úr Kötlum og Jón Helgason, prófessor, rithöfund og ljóðskáld. Guðmundur Andri Thorsson flytur eigið lag við Yfir kaldan eyðisand og fleiri stökur eftir Kristján Fjallaskáld, Rebekka Blöndal syngur lag Jóns Ásgeirssonar við Tárið eftir Kristján, og reggae sveitin Ojba Rasta flytur lagið Hreppstjórinn. Ingólfur Steinsson flytur lag sem hann og Leifur Hauksson sömdu við Jesús Maríuson eftir Jóhannes úr Kötlum. Magnús Eiríksson syngur eigið lag við ljóðið Ef allt þetta fólk eftir Jón Helgason, Kristjana Arngrímsdótir syngur Lestin brunar, Ingólfur Steinsson flytur brot úr kvæðinu Í Árnasafni, Egill Ólafsson og Sverrir Guðjónsson flytja lag Ríkarðs Arnar Pálssonar við ljóðið Í djúpum míns hjarta eftir Jón Helgason og Háskólabandið flytur enskt lag og þýðingu Jóns Helgasonar á söngkvæðinu sem heitir Jón Bygg.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,