Flugur

Lög við ljóð íslenskra skálda

Leikin eru lög sem samin hafa verið við ljóð íslenskra skálda. Fyrst eru tvö ljóð eftir Tómas Guðmundsson sem Þormar Ingimarsson samdi lög við. Fyrra lagið er Sundin blá sem Pálmi Gunnarsson syngur og Ríó tríó flytur seinna lagið sem heitir Við höfnina. Katrín Halldóra Sigurðardóttir syngur lag Bergþóru Árnadóttur við ljóð Tómasar Guðmundssonar Frá liðnu vori. Bergþóra syngur sjálf eigið lag við kvæðið Ein á báti eftir Herdísi Andrésdóttur og Jóhann Sigurðarson syngur Suðurnesjamenn eftir Sigvalda Kaldalóns við ljóð Ólínu Andrésdóttur. Una Stef syngur lag föður síns Stefáns S. Stefánssonar við þulu Theódóru Thoroddsen Tunglið, tunglið taktu mig og Ingólfur Steinsson flytur eigið lag við þuluna Kom ég þar kveldi eftir Theódóru. Hljómsveitin Þokkabót flytur lagið Karl sat undir kletti sem Jórunn Viðar samdi við ljóð Halldóru B. Björnsson. Lítið eitt flytur tvö lög, það fyrra við ljóð Davíðs Stefánssonar, sem heitir Karlinn á klöpinni, lagið er eftir Gunnar Gunnarsson og hinsvegar Þá var ég ungur sem Jón Árni Þórisson samdi við ljóð Arnar Arnarsonar. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Birt

2. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,