Lög við ljóð sem birtust í þriðju og fjórðu ljóðabókum Davíðs Stefánssonar
Þriðji þáttur af sex þar sem leikin eru nokkur lög sem samin hafa verið við ljóð Davíðs Stefánssonar. Að þessu sinni er áherslan á ljóð úr ljóðabókinni Kveðja frá 1924 og einnig úr ljóðabókinni Ný kvæði frá 1929. Haukur Morthens syngur Til eru fræ, Álftagerðisbræður syngja Ég vildi ég væri, Arnþrúður Ingólfsdóttir og Ingólfur Steinsson syngja Nú sigla svörtu skipin, Pascal Pinon flytur lag við ljóðið En þú varst ævintýr, Klaufar flytja Litla kvæðið um litlu hjónin, Heimir og Jónas flytja lag Heimis við ljóðið Bréfið hennar Stínu og Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar leikur lag eftir Steingrím M. Sigfússon við þetta sama kvæði. Nútímabörn syngja lag við ljóðið Konan sem kyndir ofninn minn, Jóhann Sigurðarson syngur lag Sveins M. Sveinssonar við ljóðið Örlög, Hljómsveitin Í hvítum sokkum flytur lag við ljóðið Bærinn er frægur og Jóhanna Linnet syngur lag Torfa Ólafssonar við Vorljóð. Umsjón: Jónatan Garðarsson.