Flugur

Trú, von, kærleikur og minningar

Leikin eru lög þar sem hugtökin trú, von, kærleikur og minningar koma við sögu með einum eða öðrum hætti. Fyrstu tvö lögin eru eftir Stefán S. Stefánsson. Þór Breiðfjörð og Regína Ósk Óskarsdóttir syngja fyrra lagið sem heitir Trú, en Þór syngur seinna lagið sem heitir Morgunstund. Páll Róskinkranz syngur lag sem Jóhann G. Jóhannsson samdi 1971 við kærleiksboðskap Páls postula. Hann syngur líka lag sem heitir Náttúrbarn (Ég hugsa um þig) eftir Roland Hartwell en textann gerði Stefán Hilmarsson. Maríanna Másdóttir og Már Guðnason syngja Upp á afskekktri hæð, lag eftir George Bennet en íslenski textinn er eftir Ásmund Einarsson. Anna Gréta Sigurðardóttir flytur sálminn vil ég enn í nafni þínu og Valgerður Guðnadóttir og Edgar Smári Atlason syngja lag Jóhanns Helgasonar Ég á trú. Edgar Smári syngur lagið Ferðalangur sem er eftir Fernando Ortega en íslenska textann gerði Guðlaug Gunnarsdóttir. Hjalti Gunnlaugsson og Þóra Gísladóttir syngja lokalagið sem heitir Sannleikurinn og er eftir Hjalta. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Birt

6. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,