
Flugur
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru nokkur lög sem hafa verið samin við ljóð Einars Más Guðmundssonar og líka söngtextar sem hann hefur samið fyrir aðra. Fyrsta lagið er Tregagleði eftir Börk Hrafn Birgisson og Sigríði Eyþórsdóttur sem Elísabet Eyþórsdóttir syngur. Þá hljómar lag eftir Börk Hrafn og Elísabetu sem Ellen Kristjánsdóttir syngur og heitir Gestaþáttur. Óskar Pétursson syngur lagið Ástarsól eftir Gunnar Þórðarson og Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir syngur lögin Tregagleði og Skógarljóð eftir Ásgeir Ásgeirsson. Hljómsveitin Blágresi flytur lögin Pensildrættir blámans, Vekjum heiminn og Þessar blóðrauðu varir. Helgi Björnsson og Sjaldgæfir fuglar flytja lagið Nýtt ljós og Jet Black Joe flytur lagið Chains of Mind.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.