Flugur

Lög við ljóð eftir Gunnar Dal o.fl.

Leikin eru lög við ljóð eftir Gunnar Dal, Hannes Sigrússon og Snorra Hjartarson. Gunnar Dal var skáldanafn Halldórs Sigurðssonar skálds, þýðanda og heimspekings. Fyrst eru nokkur lög við ljóð þess fyrrnefnda. Sigrún Jónsdóttir syngur texta sem hann gerði við írska þjóðlagið Londonderry Air og nefndi Vögguvísu. Sif Ragnhildardóttir syngur lag Ingva Þórs Kormákssonar við ljóðið Tökubarn, Páll Rósinkranz syngur lag Magnúsar Þórs Sigmundssonar við ljóðið Mín hvíta lilja, þjóðlagakvartettin Brek flytur eigið lag við ljóðið Langferð, Haukur Þórólfsson syngur eigið lag við ljóðið Ósýnilegi maðurinn, Guðmundur Hermannsson syngur eigið lag við ljóðið Nótt í Sínaí og einnig lag Ingva Þórs Kormákssonar við ljóðið Borgarnóttin eftir Hannes Sigfússon. Sönghópurinn við Tjörnina syngur lag Tómasar R. Einarssonar við ljóð Snorra Hjartarsonar Land þjóð og tunga. Berglind Björk Jónasdóttir syngur lag Inga Þórs við ljóð Snorra sem heitir Gestur og síðustu flytur Hannes Jón Hannesson eigið lag við ljóðið Þjóðlag eftir Snorra Hjartarson.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Birt

20. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,