Flugur

Lög við ljóð úr annarri ljóðabók Davíðs Stefánssonar

Annar þáttur af sex þar sem leikin eru nokkur lög sem samin hafa verið við ljóð Davíðs Stefánssonar. Núna eru það ljóð sem birtust í annarri og þriðju ljóaðabókum hans, Kvæði, árið 1922 og Kveðja árið 1924. Jakob V. Hafstein syngur eigið lag við ljóðið Lapi, listamannakrá í Flórens, Haukur Morthens syngur lag Jóns frá Hvanná við ljóðið um Capri Katarinu, Páll Jóhannesson syngur lag Jóns Björnssonar við ljóðið um Bláa hellinn, Kristjana Arngrímsdóttir syngur eigið lag við ljóðið Ég nefni nafnið þitt, tvíeykið Ylja flytur lagið Konan með sjalið, Haukur Morthens syngur um Rósamundu, lag eftir Unni Sveinsdóttur. Örvar Kristjánsson flytur lagið Komdu inn í kofann minn og Óskar Pétursson syngur Dalakofann. Berti Möller syngur með Hljómsveit Svavars Gests lagið Útlaginn eftir Gunnar Pál Ingólfsson, Álftagerðisbræður syngja lag Sigvalda Kaldalóns við ljóðið Hamraborgin og Sunna Ingólfsdóttir syngur Þú skalt farmanns kufli klæðast eftir Ingólf Steinsson. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Birt

11. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,