Leikin eru lög þar sem sól og sumar eru í forgrunni og hefst þátturinn á laginu Sólin er komin með Mugison. Síðan syngja Karlotta Sigurðardóttir og Sigurlaug Jónsdóttir lagið Sumar og sól. Bjarni Arason tekur við og flytur lag sitt Þegar sólin sýnir lit. Guðrún Gunnarsdóttir og Latínudeildin flytja lagið Sumartíð og Hreimur Örn Heimisson syngur eigið lag sem heitir Sólin er sest. Sigga Eyrún og Karl Olgeirsson flytja útfærslu sína á laginu Í dag skein sól og Sigurður Guðmundsson syngur eigið lag sem heitir Þar sem sólin skín. Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar flytur lagið Sumarfrí og Jóhann Sigurðarson syngur Sól rís, sól sest. Nylon flytur lagið Síðasta sumar og Eva Ásrún Albertsdóttir syngur Sumarfrí eftir Geirmund Valtýsson. Umsjón: Jónatan Garðarsson.