• 00:02:39Verðbólguaðgerðir
  • 00:25:52Umbúðir og flokkun
  • 00:45:11Páll Líndal umhverfissálfræðingur

Samfélagið

Verðbólguaðgerðir, matvælaumbúðir, pistillinn Páls

Ríkisstjórnin kynnti í gær aðgerðir til takast á við verðbólguna sem mælist 9,5%. Samkvæmt áætluninni á skera niður útgjöld og hækka skatta til vinna gegn verðbólgunni og samtals á viðsnúningurinn bæta afkomu ríkissjóðs um rúma 36 milljarða króna á næsta ári. Við ætlum ræða þessar aðgerðir og ástandið við Jón Bjarka Bentsson aðalhagfræðing Íslandsbanka.

Matvælaumbúðir verða sífellt flóknari - sem gerir flokkun á þeim flóknari, jafnvel ómögulega. Eins og nýverið mál tengt mjólkufernum sem eru brenndar til orkunýtingar til framleiðslu sements í Evrópu eins og Heimildin fletti ofan af fyrir skemmstu. Þær fara semsagt ekki í pappirsendurvinnslu fernurnar - eru víst ekki nógu góður pappír. Við ætlum ræða við Búa Bjarmar Aðalsteinsson vöruhönnuð um þennan frumskóg umbúða, þar sem kröfur um arðsemi, einfaldleika og umhverfisvernd fara eiginlega bara aldrei saman.

Páll Líndal umhverfissálfræðingur er svo með sinn pistil í lok þáttar.

Frumflutt

6. júní 2023

Aðgengilegt til

5. júní 2024
Samfélagið

Samfélagið

Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.

Þættir

,