Söfn á Íslandi, Vísindavefur og framtíðin, málfar og þjóðlendur
Það eru miklu fleiri söfn á Íslandi en flesta grunar og við ætlum í tilefni alþjóðlega safnadagsins sem haldin var hátíðlegur í síðustu viku að ræða söfn okkar Íslendinga, stöðu þeirra, tilgang og sjálfbærni - sem greiningardeildir vilja meta mjög litla, að minnska kosti þegar kemur að fjárhag. Hólmar Hólm formaður Íslandsdeildar ICOM, sem er alþjóðaráð safna, hittir Samfélagið á safni.
Vísindavefurinn hefur verið starfræktur í meira en tvo áratugi og þar er að finna fróðleik um allt milli himins og jarðar. Við ætlum að heyra hvernig þessi vefur hefur vaxið og dafnað undanfarið Jón Gunnar Þorsteinsson ritstjóri kemur í heimsókn
Málfarsmínúta
Við heimsækjum svo Þjóðskjalasafn Íslands og kynnum okkur viðamiklar rannsóknir á skjölum sem tengjast þjóðlendum. Ólafur Arnar Sveinsson, fagstjóri fræðslu og rannsókna ræðir við okkur.
Frumflutt
22. maí 2023
Aðgengilegt til
22. maí 2024
Samfélagið
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.