Samfélagið

Viðlagakassinn, Trukkaveitan, sprengidagsspeki og pistill umhverfissálfræðings

Eru til 12 lítrar af vatni á hvern heimilismeðlim, þurrmatur, hleðslubanki, prímus. Hér á landi er lagt upp með fólk geti bjargað sér í þrjá daga ef neyðarástand skapast og innviðir bresta, til dæmis vegna náttúruhamfara. Við ætlum ræða viðlagakassann við Gylfa Þór Þorsteinsson, teymisstjóra hjá Rauða krossinum, ekki síst í ljósi yfirstandandi hamfara á Reykjanesskaganum.

Trukkaveitan - hvað er það? Hrefna Hallgrímsdóttir forstöðumaður hitaveitu hjá Veitum ræðir þetta við okkur. 1800 tonn af heitu vatni á 10 tankbílum sem fóru um 140 ferðir með fulla tanka af 80 gráðu heitu vatni koma við sögu og úrræðagóðir veitustarfsmenn.

Í dag er sprengidagur og eflaust margir hlustendur saddir og sælir eftir hádegismatinn. Við ætlum í tilefni dagsins rifja upp viðtal frá árinu 2010 þar sem rætt var við Árna Björnsson, þjóðháttafræðing, um sprengidag, saltkjöt og baunir fyrir Síðdegisútvarpið á Rás 2.

Við fáum svo pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.

Frumflutt

13. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.

Þættir

,