• 00:05:29Metfjöldi umsókna um hlutdeildarlán
  • 00:29:35Nýr heitavantstankur skoðaður
  • 00:47:28Pistill Páls Líndal umhverfissálfræðings

Samfélagið

Hlutdeildarlán, nýr heitavatnstankur og umhverfissálfræði

Við forvitnumst um svokölluð hlutdeildarlán sem Húsnæðis og mannvirkjastofnun veitir fyrstu kaupendum í lægri tekjuhópum. Í ár barst metfjöldi umsókna um slík lán og við ætlum biðja Einar Georgsson verkefnisstjóra hlutdeildarlána hjá HMS segja okkur frá því hvernig þessi lán eru hugsuð, hverjir geta tekið þau og ýmislegt fleira.

Við förum í bíltúr upp á Reynisvatnsheiði. Þar rís mikið gímald - glænýr heitavatnstankur sem á taka í gagnið síðar í mánuðinum. Við mæltum okkur mót við Hákon Gunnarsson hjá Veitum sem segir okkur frá þessu mannvirki og leyfir okkur jafnvel kíkja inn í tankinn.

Svo fáum við pistil í lok þáttar frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi.

Frumflutt

5. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.

Þættir

,