Samfélagið

Stafrænn útivistartími, heyrnarskerðing, málfar, sellófan og hagamýs

Við ræðum hér á eftir við Margréti Lilju Guðmundsdóttur þekkingarstjóra hjá Planet youth um skjátíma og nauðsyn þess setja á stafrænan útivistartíma á börn og ungmenni, jafnvel fullorðna. En eins og aðrar rammar sem foreldrar og skólar og samfélagið hafa komið upp tekur ákveðinn tíma lendingu og finna út úr þessu, en tæknihraðinn er slíkur það er ærið tilefni til bregðast hratt við.

Við endurflytjum efni frá því síðasta vetur hér í Samfélaginu. Kristbjörg Gunnarsdóttir og Kristbjörg Pálsdóttir eru báðar heyrnarfræðingar og leiða okkur í gegnum nokkrar upptökur sem leyfa hlustendum heyra hvernig mismunandi heyrnarskerðingar hljóma.

Málfarsmínúta er á sínum stað og ruslarabb

Svo fáum við heyra aftur pistil frá Ester Rut Unnsteinsdóttur spendýravistfræðingi en þar sagði hún okkur athyglisverðar fréttir af landnámi hagamúsa í Vestmannaeyjum.

Frumflutt

5. júní 2023

Aðgengilegt til

4. júní 2024
Samfélagið

Samfélagið

Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.

Þættir

,