• 00:02:39CITES samingurinn - Sigurður Þráinsson
  • 00:26:15Garðurinn fýkur burt
  • 00:44:17Málfarsmínúta
  • 00:47:50Neytendaspjall um netsvindl

Samfélagið

Tegundir í útrýmingarhættu, garðurinn fokinn burt, málfar og netsvindl

Við ætlum forvitnast um Samninginn um alþjóðverslun með tegundir í útrýmingarhættu - CITES. Ísland hefur verið aðili samingnum síðan árið 2000. Sigurður Þráinsson deildarstjóri hjá umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytinu þekkir samninginn í hörgul. Hann sest hjá okkur eftir smástund.

Garðeigendum og öðru áhugafólki um trjágróður og plöntur er öllu lokið og gerði nýafstaðin Hvítasunnuhelgi útslagið því er virðist, í það minnsta suðvestanlands. Laufblöð, blóm og brum hefur fokið af trjám og runnum og þau standa eftir ber, blóm og garðagróður hefur visnað, allt er brúnt eða dautt og bara fátt sem minnir á vor eða sumar. Hefur þetta vor vinda vætu og kulda drepið allt og er sumrinu í garðinum aflýst? Guðríður Helgadóttir garðyrkjusérfræðingur kemur til okkar.

Málfarsmínúta er svo á sínum stað og við fáum svo Brynhildi Pétursdóttur ritstjóra neytendablaðsins í spjall um netsvindl, en sífellt fleiri svikahrappar virðast útbúa auglýsingar á facebook með tilboðum sem eru of góð til vera sönn - en fjölmörg falla engu síður fyrir.

Frumflutt

30. maí 2023

Aðgengilegt til

30. maí 2024
Samfélagið

Samfélagið

Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.

Þættir

,