Samfélagið

Verðmætir aldraðir, svansvottun og sandlóa, málfar og skötuselur

Í gær var kynnt heildarendurskoðun og aðgerðaráætlun vegna þjónustu við eldra fólk undir yfirskriftinni Gott eldast. Þá var líka sagt frá greiningu sem KPMG vann fyrir stjórnvöld þar sem kemur fram eldra fólk leggur mikið til samfélagsins og það er mikilvægt stuðla auknu heilbrigði þessa hóps. Það er líka efnahagslega ábatasamt. Þetta er verðmætur hópur. Endurskoðunin og aðgerðaáætlunin voru unninn í samstarf stjórnvalda, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands eldri borgara. Helgi Pétursson er formaður Landssambandsins.

Við heimsækjum svo framkvæmdasvæði á Seltjarnarnesi þar sem verið er reisa svansvottaðar byggingar - og forvitnumst um hvað í því felst með Sigrúnu Melax gæðastjóra Verks - og sjáum líka húsið sem starfsfólkið þarna er búið er reisa yfir sandlóu og hreiður hennar, það er óheppilega staðsett á svæðinu miðju við vegaslóða stórvirkra vinnuvéla - en allt er reynt til sambýlið gangi upp. Fallegt.

Málfarsmínúta í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur.

Við fáum svo dýraspjall í lok þáttar, Magnús Thorlacius sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun kemur til okkar og segir okkur allt um sitt helsta hugðarefni, skötuselinn.

Frumflutt

26. maí 2023

Aðgengilegt til

26. maí 2024
Samfélagið

Samfélagið

Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.

Þættir

,