Landamæralausar loftlagsbreytingar, samningatækni, málfar og plöntur
Við ætlum að ræða við íslenskan sérfræðing í loftlagsbreytingum þvert á landamæri, Mikael Allan Mikaelsson vinnur hjá alþjóðlegri hugveitu í Stokkhólmi á sviði umhverfismála og rannsókna. Hann skoðar meðal annars hvaða efnahagslegu áhrif loflagsbreytingar hafa á innviði landa og kemur einnig að fyrsta loftlagsáhættumatinu fyrir Evropusambandið
Lið nemenda við Háskólann í Reykjavík er komið í undanúrslit alþjóðlegrar keppni í samningatækni sem fer fram í Róm síðar í mánuðinum. Við erum forvitin um þetta - hvað þarf að hafa í huga og hvernig maður æfir sig fyrir slíka keppni í samningatækni? Landsliðið í samningatækni sest hjá okkur á eftir. Liðið er skipað þeim Andra Örvari Baldvinssyni, Halldóri Ægi Halldórssyni og Soffíu Ósk Kristinsdóttur.
Málfarsmínúta
Endurflutt dýraspjall við Vigdísi Freyju Helmútsdóttur plöntuvistfræðing sem sinnir afar forvitnilegum rannsóknum á því hvernig plöntum líður í hlýnandi heimi.
Frumflutt
12. maí 2023
Aðgengilegt til
12. maí 2024
Samfélagið
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.