• 00:02:42Netvarnir - CertIs
  • 00:20:58Kolefnisbinding; umræða
  • 00:41:05Málfarsmínúta
  • 00:42:12Dýraspjallið

Samfélagið

Netvarnir, kolefnisbinding, málfar og dýraspjall

Undirbúningur fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins fer hámarki, en stóri fundur fer fram 16.-17. maí í Hörpu. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands eru gestgjafar fundarins enda gegnir Ísland formennsku í Evrópuráðinu. Það er mikil og ströng öryggisgæsla vegna fundarins og eitt sem hefur komið fram í fjölmiðlum undanfarið er auknar líkur á hvers kyns netárásum. Og þá borgar sig vera undirbúinn. Guðmundur Arnar Sigmundsson er forstöðumaður Cert-ís, netöryggissveitar Fjarskiptastofu.

Við ætlum velta fyrir okkur kolefnisbindingu og kolefnisjöfnun og hverju það a skila. Það er töluvert deilt um þessi mál, þau tengjast mikið inn í umræður um skógrækt og landgræðslu og hvaða stefnu Íslendingar eiga taka í þeim efnum. Árni Finnsson formaður náttúruverndarsamtaka Íslands og einn stofnfélaga VÍN - sem eru vinir íslenskrar náttúru og Hreinn Óskarsson hjá skógræktinni, skógfræðingur og sviðsstjóri þjóðskóga líta þessi mál ólíkum augum. Við tölum við þá.

Málfarsmínútan verður á sínum stað og sömuleiðis dýraspjallið. þessu sinni ætlum við ræða við Vigdísi Freyju Helmútsdóttur plöntuvistfræðing sem sinnir afar forvitnilegum rannsóknum á því hvernig plöntum líður í hlýnandi heimi.

Frumflutt

28. apríl 2023

Aðgengilegt til

27. apríl 2024
Samfélagið

Samfélagið

Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.

Þættir

,