Murtur hrynja niður, B teymið á COP27 og Íðorðabankinn
Við heyrðum fréttir af því um helgina að murtustofninn í Þingvallavatni væri í afar slæmu ástandi. Við ætlum að tala um Þingvallamurtuna við Finn Ingimarsson forstöðumann Náttúrustofu Kópavogs, sem hefur vaktað Þingvallavatn undanfarin ár.
Halla Tómasdóttir, forstjóri The B-Team, er komin heim til New York eftir að hafa sótt loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP27 í Sharm El Sheik í Egyptalandi. Hún verður á línunni hjá okkur og segir okkur frá því sem hún var að gera þar.
Við ætlum svo að ræða við Ágústu Þorbergsdóttur ritstjóra Íðorðabankans, sem var settur á laggirnar fyrir aldarfjórðungi síðan, bankinn er uppflettisafn orða innan ákveðinna starfs- eða fræðigreina, sum orð þekkir almenningur vel, önnur eru svakalega sérhæfð, sum ná flugi og önnur ekki. Það er nefnilega bæði list og vísindi að finna upp orð sem þjált, stutt og lýsandi fyrir efnið.
Frumflutt
15. nóv. 2022
Aðgengilegt til
16. nóv. 2023
Samfélagið
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál.
Umsjón: Þórhildur Ólafsdóttir og Guðmundur Pálsson.