Loftlagsráðstefna COP27 í Egyptalandi að hefjast, túndrur og málfar
Hin árlega loftslagsráðstefna Sþ. hefst á sunnudaginn, hún fer að þessu sinni fram í Egyptalandi, nánar tiltekið Sharm el Sheikh.
Þessar ráðstefnur þykja mikilvægur vettvangur til að ríki heims geti unnið að loftlagsaðgerðum í sameiningu, markmiðið sagt sameiginlegt og því ættu leiðirnar að vera það líka. Rætt annarsvegar við Helgu Barðadóttur sem fer fyrir sendinefnd íslenskra stjórnvalda - og hinsvegar Tinnu Hallgrímsdottur, sem verður á svæðinu sem formaður Ungra umhverfissina.
Málfarsmínúta
Ingibjörg Svala Jónsdóttir prófessor í vistfræði við Háskóla Íslands er gestur í dýraspjallinu svokallaða, hún hefur rannsakað dýr og gróður á túndrum heimsins, sérstaklega við norðurheimskaut.
Ruslarabb endurflutt, um flokkun sápupumpa og pilluspjaldna.
Frumflutt
4. nóv. 2022
Aðgengilegt til
5. nóv. 2023
Samfélagið
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál.
Umsjón: Þórhildur Ólafsdóttir og Guðmundur Pálsson.