Sláturtíð, leynileg skjöl, ruslarabb og sökkvandi eyjur
Ágúst Torfi Hauksson stjórnarformaður landssamtaka sláturleyfishafa og framkvæmdastjóri Kjarnafæði Norðlenska: Brátt verður fé rekið af fjalli, og flest þaðan og í sláturhúsin. Það er komin sláturtíð, rætt um afurðaverð og framboð, fallþunga dilka, mönnun í komandi vertíð og ýmislegt fleira.
Bandaríska alríkislögreglan rannsakar nú hvort, og í hvaða mæli, Donald Trump fyrrverandi forseti hélt eftir ýmsum skjölum tengdum embættinu eftir að hann hætti sem forseti. Birta Björnsdóttir fréttamaður ætlar að segja okkur frá rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar sem bendir til þess að sum þessara skjala hafi verið háleynileg.
Ruslarabb
Finnur Ricart Andrason: Umhverfispistill um eyjur sem sökkva í sæ.
Frumflutt
1. sept. 2022
Aðgengilegt til
2. sept. 2023
Samfélagið
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál.
Umsjón: Þórhildur Ólafsdóttir og Guðmundur Pálsson.