Utanvegaakstur og auglýsingar, hnippingar, málfar og verðmerkingar
Davið Arnar Stefánsson, sérfræðingur hjá Landgræðslunni: Stuðla auglýsingar þar sem bílum er keyrt utan vega og ofan í ár að því að fólk geri slíkt í raun og veru? Landgræðslan hefur um árabil gagnrýnt það hvernig íslensk náttúra birtist sem svæði sem má gera hvað sem er á í hverskyns auglýsingum og kynningarefni - við skoðun tengingunum þarna á milli og veltum því upp hvort og þá hverju væri hægt að breyta.
Rannsóknir hafa sýnt að þegar kemur að vali á sjálfbærum og umhverfisvænum vörum er kauphegðun okkar Íslendinga ekki alltaf í samræmi við yfirlýst viðhorf okkar. Snorri Rafn Hallsson tók Dóru Sóldísi Ásmundardóttur, verðandi umhverfis- og auðlindafræðing tali og fræddist um hvernig hnippingar geta hjálpað okkur að taka betri ákvarðanir og hvernig matvöruverslanir geta lagt sitt á vogarskálarnar.
Málfarsmínúta á sínum stað. Guðrún Línberg Guðjónsdóttir sá um.
Rætt við Einar Bjarni Einarsson lögfræðingur Neytendasamtakanna: Fjallað um verðmerkingar, en tvö mál hafa verið tekin fyrir og úrskurðað í þar sem seljandi og kaupandi tókust á um verðmerkingar. Hvenær stendur gefið verð og hvenær ekki?
Frumflutt
30. maí 2022
Aðgengilegt til
31. maí 2023
Samfélagið
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál.
Umsjón: Þórhildur Ólafsdóttir og Guðmundur Pálsson.