
Vínill vikunnar
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar í þetta sinn er hljómplatan Rattlesnakes með hljómsveitinni Lloyd Cole and the Commotions sem kom út í október 1984. Hljómsveitin starfaði frá 1982-1989 og náði talsverðum vinsældum á sínum tíma og kom meðal annars til Íslands og spilaði í Laugardalshöll á vegum Listahátíðar Reykjavíkur í júní 1986. Það voru tvennir tónleikar þar sem Lloyd Cole spilaði fyrra kvöldið ásamt bresku hljómsveitinni Simply Red og daginn eftir, eða 17.júní, spiluðu Madness og Fine Young Cannibals. Þessir tónleikar vöktu gríðarlega athygli og áttu án efa stærstan þátt í því að kynna Lloyd Cole and the Commotions fyrir Íslendingum.
A-hlið:
Perfect Skin
Speedboat
Rattlesnakes
Down on Mission Street
Forest Fire
B-hlið:
Charlotte Street
2cv
Four Flights Up
Patience
Are You Ready to Be Heartbroken?
Við enduðum svo vínil vikunnar í þetta sinn á því að heyra tvö aukalög, bæði af annarri plötu sveitarinnar Easy Pieces sem kom út árið 1985, það eru lögin Lost Weekend og Brand New Friend.
Umsjón: Gunnar Hansson

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.

