Vínill vikunnar

Beverly Glenn-Copeland - Keyboard Fantasies

Vínill vikunnar þessu sinni er platan Keyboard Fantasies með kanadíska söngva- og tónskáldinu Beverly Glenn-Copeland.

Keyboard Fantasies kom fyrst út á kassettu árið 1986, gefin út af Glenn-Copeland sjálfum og seldist í fáeinum eintökum.

Platan er öll rafræn utan raddar Copeland, algjörlega unnin á Yamaha DX-7 hljómborð og Roland TR-707 trommuheila, stafræn hljóðfæri sem voru um það leyti sem Keyboard Fantasies kom út, ryðja sér til rúms sem helstu tæki teknó og housetónlistarfólks.

Glenn-Copeland var langt á undan sinni samtíð og tónlist hans féll í gleymsku. Árið 2015 komst japanskur plötusafnari yfir Keyboard Fantasies og hafði uppi á Copeland og bað hann senda sér kassettur til selja. Copeland samþykkti og kasseturnar ruku út. Fljótlega fór honum berast beiðnir um endurútgáfu og platan var gefin út á vínil 2017 og hefur verið endurpressuð nokkrum sinnum síðar, auk annarrar tónlistar Glenn-Copelands.

Lagalisti:

A1: Ever New

A2: Winter Astral

A3: Let Us Dance

B1: Slow Dance

B2: Old Melody

B3: Sunset Village

Umsjón: Pétur Eggertsson

Birt

20. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Vínill vikunnar

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.

Þættir

,