Vínill vikunnar er önnur platan í safnplötupakka SATT sem kom út 1984.
Samtök alþýðutónskálda og tónlistarmanna, sem skammstafað var sem SATT, voru stofnuð á sínum tíma í kjölfar deilna um skiptingu svonefndra STEF-gjalda sem greidd voru fyrir tónlistarflutning í Ríkisútvarpinu og innheimt af STEFi, Samtökum tón- og textahöfunda. Barátta fyrir réttlátri skiptingu STEF-gjalda var snar þáttur í starfsemi SATT, en einnig vildu samtökin ýta undir lifandi tónlistarflutning og koma upp félagsheimili tónlistarmanna. Eitt af því sem samtökin gerðu til að safna fé til húsnæðiskaupa var að gefa út þrjár safnplötur í 1.000 eintökum árið 1984 og seldu saman sem þrjár plötur á verði einnar, SATT 1, 2 og 3.
Fyrsta platan var vínill vikunnar í síðustu viku, en nú er röðin komin að plötu númer tvö sem hefur að geyma lög með enskum textum. Þriðja platan verður svo vínill vikunnar í næstu viku.
Jóhann G. Jóhannsson hafði umsjón með útgáfunni fyrir hönd SATT og fyrirtæki hans, Listamiðstöðin, annaðist dreifingu hennar. Jóhann áritaði og tölusetti líka plöturnar þúsund.
Fyrsta lagið á A-hliðinni er Love in Motion eftir Jón Þór Gíslason. Hann syngur, Hjörtur Howser leikur á hljómborð, Björn Thoroddsen á gítar, Ásgeir Óskarsson á trommur og Bjarni Sveinbjörnsson á bassa. Edda Borg og Pétur Hjaltested syngja bakraddir.
Þá kemur Allright með hljómsveitinni DRON, Danshljómsveit Reykjavíkur og nágrennis. Máni Svavarsson samdi lagið og Bragi Ragnarsson textann. Bragi syngur, Björn Gunnarsson leikur á bassa, Einar Þorvaldsson á gítar, Máni á hljómborð og Óskar Þorvaldsson á trommur.
That's All! er lag eftir Einar Vilberg. Hann syngur og leikur á gítara, Jón Ólafsson á bassa og Ásgeir Óskarsson á trommur.
Old Song er með hljómsveitinni Centaur. Lag og texti eftir Sigurð Sigurðsson. Sigurður syngur og leikur á munnhörpu, Jón Óskar Gíslason leikur á sólógítar, Hlöðver Erlendsson á hryngítar, Benedikt Sigurðsson á bassa og Guðmundur Gunnlaugsson á trommur.
Pain er lag eftir Hallgrím Bergsson við texta Gunnlaugs Ólafssonar. Eiríkur Hauksson syngur, Ævar Ragnarsson leikur á bassa og gítar, Brynjar Þráinsson á trommur og Hallgrímur á hljómborð.
B-hlið SATT 2 hefst með lagi Magnúsar Þórs Sigmundssonar, Poetry. Magnús syngur og leikur á gítar og Þórir Baldursson á hljómborð og Linn-trommuheila.
My Old Friend er lag með hljómsveitinni Radíus eftir þá Vigni og Þóri Ólafssyni. Textann samdi Jóhann R. Kristjánsson. Þórarinn Ólafsson syngur lagið, Vignir leikur á gítar, Eiður Arnarsson á bassa, Sigurður Ómar Hreinsson á trommur og Birkir Huginsson á saxófón. Einnig koma við sögu Birgir Jóhann Birgisson sem leikur á hljómborð, Ásgeir Óskarsson á slagverk og Guðjón Ólafsson á gítar.
Þá er það lagið Creature með hljómsveitinni Ogopoco. Lagið eftir Þorstein Halldórsson, textinn eftir Arnar Frey Gunnarsson. Arnar Freyr syngur og leikur á gítar, Páll Viðar Tómasson leikur á hljómborð, Björgvin Pálsson á trommur og Þorsteinn Halldórsson á bassa.
Living to Fall flytur hljómsveitin Simon Bello & Dupain. Lag og texti eru eftir Sævar Magnússon og Sævar syngur og leikur á kassagítar. Kjartan Valdimarsson leikur á píanó og hljóðgervil, Úlfar Haraldsson á bassa og Ari Haraldsson á altsaxófón.
Lokalag A-hliðar er Priests með DRON. Einar Þorvaldsson samdi lag og texta. Bragi Ragnarsson syngur lagið, Björn Gunnarsson leikur á bassa, Einar Þorvaldsson á gítar, Máni Svavarsson á hljómborð og Óskar Þorvaldsson á trommur.