
Vínill vikunnar
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vísindaskáldsöguhöfundurinn og kenningasmiðurinn Ursula K. Le Guin á vínil vikunnar að sinni, plötu sem hún gerði ásamt tónlistarmanninum Todd Barton sem hverfist í kringum Kesh þjóðflokkinn sem kemur fyrir í skáldsögu Le Guin, Always Coming Home. Platan: Music and Poetry of the Kesh er heimildaskráning - hálfgerð mannfræðirannsókn á þessum skáldaða þjóðflokki sem dvelur í Napa dalnum í Norður Kaliforníu í fjarlægri framtíð, í kjölfar heimsendis.
Eftir að hafa lifað af vistfræðilegar hamfarir af völdum viðstöðulausrar iðnvæðingar, hefur Kesh fólkið byggt upp friðsælt samfélag. Það hafnar stjórnkerfum og aðþrengdum kynjaskilgreiningum. Það viðheldur sjálfbærum íbúafjölda, varðveitir auðlindir, og rekur heilbrigt samfélag þar sem allir leggja sitt af mörkum til velferðar þess.
Skáldsagan sem gefin var út 1985 er sérlega metnaðarfull og inniheldur ýmis fylgigögn. Bókin sjálf er rúmlega fimm hundruð blaðsíður að lengd og inniheldur myndskreytingar af hljóðfærum og verkfærum, kort, orðabók, uppskriftir, ljóð, stafróf tilbúins tungumáls sem Le Guin bjó til til að geta samið söngtexta á öðru máli en ensku og, í fyrstu útgáfunum, snældu með „umhverfisupptökum“ og söngvum þessa ímyndaða fólks. Le Guin vildi heyra í fólkinu sem hún hafði skapað. Hún stofnaði til umfangsmikils samstarfs við vin sinn, Todd Barton, til að kalla fram andblæ þess og hefðir. Þessi snælda var endurútgefin á vínil 2018, stuttu eftir andlát Le Guin og er það platan sem sett verður á fóninn í dag.
A1 Heron Dance
A2 Twilight Song
A3 Yes-Singing
A4 Dragonfly Song
A5 A Homesick Song
A6 The Willows
A7 Lullaby - Lahela
B1 Long Singing
B2 The Quail Song
B3 A Teaching Poem
B4 A River Song
B5 Sun Dance Poem
B6 A Music of the Eighth House
Umsjón: Pétur Eggertsson

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.

