Vínill vikunnar

Jag vill nå dig með Lill Lindfors

Vínill vikunnar er með sænsku söngkonunni Lill Lindfors, af plötunni Jag vill dig frá árinu 1984. Á plötunni eru lög úr ýmsum áttum, sum þeirra voru vinsæl í flutningi annarra listamanna, sérstaklega frá Bretlandi og Bandaríkjunum en einnig frá hinum Norðurlöndunum en öll lögin útsett af Lill og hljómsveit hennar og sungin á sænsku.

Lill Lindfors fæddist árið 1940 og varð fyrst fræg fyrir hlutverk sín í revíum og söngleikjum og hefur um ævina leikið á sviði og í kvikmyndum, tekið þátt í söngleikjum, stjórnað sjónvarpsþáttum víða um Evrópu og starfað sjálfstætt sem söngkona svo fátt eitt upptalið. Eflaust telja hún með áhrifamestu og frægustu listamönnum Svíþjóðar á síðari tímum.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson.

Frumflutt

6. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Vínill vikunnar

Vínill vikunnar

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.

Þættir

,