Vínill vikunnar

Safnplatan SATT 1

þessu sinni er Vínill vikunnar helgaður fyrstu plötunni í safnplötupakka SATT sem kom út 1984.

Haustið 1979 stofnuðu nokkrir tónlistarmenn Samtök alþýðutónskálda og tónlistarmanna, sem skammstafað var sem SATT, öðrum þræði vegna deilna um skiptingu svonefndra STEF-gjalda sem greidd voru fyrir tónlistarflutning í Ríkisútvarpinu og innheimt af Samtökum tón- og textahöfunda. því sögðu þá var helsta baráttumál SATT ýta undir lifandi tónlistarflutning og kaupa húsnæði undir félagsheimili tónlistarmanna.

Á næstu árum efndu samtökin til ýmissa viðburða til safna til húsnæðiskaupa og 1984 gáfu þau út þrjár safnplötur í takmörkuðu upplagi, SATT 1, 2 og 3.

Á plötunum öllum er frumsamin tónlist íslenskra tónlistarmanna sem sumir voru láta í sér heyra í fyrsta sinn á plasti og sumir jafnframt í síðasta sinn. Á fyrstu plötunni, sem er vínill vikunnar þessu sinni, eru textar við lögin á íslensku, á annarri plötunni, sem hljómar í næstu viku, eru textar á ensku, en á þriðju plötunni, sem verður vínill vilkunnar eftir tvær vikur, er sýnishorn af rokkbyltingu níunda áratugarins.

Jóhann G. Jóhansson hafði umsjón með útgáfunni fyrir hönd SATT og fyrirtæki hans, Listamiðstöðin, annaðist dreifinu. Jóhann áritaði líka plötunar, 1.000 eitök alls.

A-hlið SATT 1 hefst með lagi Halldórs Fannars Ellertssonar Blómin mín, sem hann samdi við eigin texta með Rúnari Þór Péturssyni. Halldór syngur og leikur á hljómborð og ásláttarhljóðfæri, Rúnar leikur á trommur og rafgítar og Örn Jónsson á bassa.

Þá kemur Steinsteypurómantík eftir Ingva Þór Kormáksson við texta Ragnars Inga Aðalsteinssonar. Sverrir Guðjónsson syngur, Gunnar Jónsson leikur á trommur, Bjarni Sveinbjörnsson á bassa, Vilhjálmur Guðjónsson á gítar og tenórsaxófón og Ingvi Þór Kormáksson á píanó.

Hvar er friður heitir lag Bergþóru Árnadóttur sem hún syngur við undirleik Tryggvi Hübner á gítara og bassa og Þóris Baldurssonar á hljómborð, trommuheili og fleira.

Þá kemur Vinarkveðja Hallgríms Bergssonar, lag eftir hann við texta hans og Jóns G. Sigurðssonar. Pálmi Gunnarsson syngur, Ingvi Gunnar Jóhannsson leikur á kassagítar, Hallgrímur á hljómborð og Sigurður Rúnar Jónsson á fiðlu.

Lokalag A-hliðar er Rósir og lof með Hljómsveitinni Foss, en lag og texta á Ágúst Ragnarsson. Hann syngur og leikur á gítar, Axel Einarsson leikur einnig á gítar, Jón Ólafsson á bassa og Ólafur J. Kolbeins á trommur.

B-hlið plötunnar hefst með laginu Ég vil ekki vera... með Jóni G. Ragnarssyni, sem semur lag og texta og leikur á gítar og syngur. Með honum spila Einar Jónsson á gítar, Jón Ólafsson á bassa og Trausti Jónsson á trommur, en Ágúst Jónsson og Axel Einarsson syngja bakraddir.

Ég um þig frá okkur til beggja er eftir Sverri Stormsker Ólafsson. Sverrir á lag og texta og syngur og leikur á rafmagnspíanó og trommuheila, Halldór Halldórsson spilar á bassa og Þórður Magnússon á rafgítar og syngur bakrödd. Strengjabrúður, þær Elísabet, Ólöf, Bryndís og Vala, leika á strokhljóðfæri

Í hnotskurn er eftir Halldór Fannar Ellertssonar. Hann syngur og leikur á hljómborð og ásláttarhljóðfæri, Rúnar Þór Pétursson leikur á trommur og rafgítar og Örn Jónsson á bassa.

Desembersíðdegisblús er lag eftir Ingva Þór Kormáksson við texta Einars Ólafssonar. Flytjendur eru Ingvi Þór Kormáksson & Co: Guðmundur Hermannsson syngur, Gunnar Jónsson leikur á trommur, Bjarni Sveinbjörnsson á bassa, Vilhjálmur Guðjónsson á gítar og Ingvi Þór á hljómborð.

Lokalag B-hliðar eru svo lagið Tunglskyn með Hljómsveitinni Þrym. Halldór Erlendsson samdi lagið við ljóð Steins Steinarr. Þórður Bogason syngur, Halldór Erlendsson leikur á gítar og syngur bakraddir, Þórður Guðmundsson spilar á bassa, Pétur Einarsson á trommur og Kjartan Valdimarsson á hljómborð.

Birt

21. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Vínill vikunnar

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.

Þættir

,