
Vínill vikunnar
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er Mávastellið með Grýlunum sem kom út sumardaginn fyrsta árið 1983.
Hlið - A
Sísi
Í trjánum
Valur og jarðaberjamaukið hans
Betri er limur en limlestur
Lilja Laufey Þórsdóttir
Grátkona
Hlið - B
Sigmundur kroppur
Þú ert of hvít
Djásnið mitt
Tröllaþvaður
Lalli, Leifur og Laumi á vínberjauppskeruhátið 1969
Mávastellið kom út árið 1983, en þá höfðu Grýlurnar þegar slegið í gegn og komið m.a. fram í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík og auðvitað einnig sem Gærurnar í kvikmyndinni Með allt á hreinu. Platan kom út á sumardaginn fyrsta og var kominn á toppinn strax í maí og var því afar vel tekið. Viðtökur gagnrýnenda voru yfirleitt einnig mjög góðar. Þannig var yfirskrift plötudóms Sigurðar Sverrissonar í Morgunblaðinu hatturinn tekinn ofan og byrjaði svona:
„Ef ég gengi dags daglega með hatt á höfði léti ég mér ekki nægja að taka hann ofan fyrir Grýlunum – ég myndi éta hann líka! Það skal ég segja hreint út, að Mávastellið Grýlanna kom mér stórkostlega á óvart í alla staði.“ Sigurður heldur síðan áfram og gefur lögum, textum, hljóðfæraleik, söng og hljóðblöndun toppeinkunn.
Það var hin einstaka Ragnhildur Gísladóttir sem átti frumkvæðið að stofnun Grýlanna snemma árs 1981. Hún var þá þegar orðin landsfræg fyrir söng sinn og tónlistarflutning og sýndi á sér alveg nýja hlið með stofnun sveitarinnar. Með henni í hljómsveitinni voru Inga Rún Pálmadóttir gítarleikari, Linda Björk Hreiðarsdóttir trommuleikari og Herdís Hallvarðsdóttir bassaleikari. Þær munu hafa verið valdar úr hópi allmargra umsækjenda þegar Ragnhildur auglýsti eftir meðspilurum í kvennahljómsveit. Fyrsta plata sveitarinnar kom út 1981 og var fjögurra laga plata sem bar nafn hennar og var brautryðjendaverk því aldrei áður hafði íslensk kvennarokksveit gefið út hljómplötu. Sú plata fékk góða dóma og góðar viðtökur sömuleiðis. Árið eftir léku Grýlurnar í kvikmyndinni Með allt á hreinu eins og áður sagði og slógu þar í gegn líkt og myndin sjálf eins og alþjóð veit.
Mávastellið kom út vorið 1983 og fylgdi á eftir vinsældum kvikmyndarinnar og Grýlanna með kraftmiklum hætti. Þar á meðal með tónleikahaldi víða um land auk þess sem þær fóru út fyrir landsteinana þá um sumarið. Þessi kraftur dugði hins vegar bara fram á haustið þegar hljómsveitin hætti nokkuð snögglega störfum og án nokkurs vafa á toppi sinna vinsælda.
Platan Mávastellið inniheldur ellefu lög í upprunalegu útgáfunni og það er sú útgáfa sem hér er aðgengileg. Öll lögin á plötunni eru eftir Ragnhildi Gísladóttur og/eða Grýlurnar, en bassaleikarinn Herdís á einnig eitt lag. Textarnir eru sömuleiðis allir eftir Grýlurnar eða Ragnhildi og Ingu Rún, ef frá er talið textinn í laginu um Val og jarðaberjamaukið hans sem er eftir Ævar Rafnsson og Kristján Edelstein.
Umsjón: Stefán Eiríksson.

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.