Vínill vikunnar í þetta sinn er hljómplatan Rain Town með skosku hljómsveitinni Deacon Blue. Deacon Blue var stofnuð í Glasgow árið 1985. Nafn hljómsveitarinnar kemur úr titli lagsins Deacon Blues með hljómsveitinni Steely Dan. Ricky Ross, söngvari og aðallagahöfundur stofnaði sveitina eftir að hann flutti frá Dundee til Glasgow og fékk til liðs við sig Lorraine McIntosh, James Prime, Dougie Vipond, Ewen Vernal og Graeme Kelling. Hljómsveitin sendi frá sér sína fyrstu plötu, Raintown, árið 1987 og náði hún talsverðum vinsældum. Sú plata er vínill vikunnar í þetta sinn. Titill plötunnar vísar til borgarinnar Glasgow og efni texta Ross voru glíman við hversdagslífið í borginni. Platan náði talsverðum vinsældum, náði hæst í 14. sæti breska vinsældarlistans og var á listanum í eitt og hálft ár.
Við hlýddum á A hlið plötunnar í heild, þar hljóma lögin í þessari röð:
Born in a Storm
Raintown
Ragman
He Looks Like Spencer Tracy Now
Loaded
When will You (Make My Telephone Ring)
Og svo var það B hlið plötunnar í heild, lögin hljóma í þessari röð:
Chocolate Girl
Dignity
The Very Thing
Love's Great Fears
Town to Be Blamed
Hljómsveitin hætti árið 1994 eftir ágætis gengi, en tók svo aftur saman um það bil áratug síðar og starfar enn. Í fyrra sendu þau frá sér sína elleftu plötu og hljómsveitin kemur reglulega fram á tónleikum. Þau Ricky og Lorraine giftust árið 1990 og eru enn gift.
Við enduðum þennan þátt á því að heyra tvö aukalög með hljómsveitinni, fyrst þeirra vinsælasta lag, Real Gone Kid frá árinu 1989 og svo Fergus Sings the Blues en bæði lögin voru á annarri hljómplötu sveitarinnar When the World Knows Your Name sem kom út árið 1989.