Fólk vill fólk
Hildigunnur Rúnarsdóttir hefur verið viðloðandi tónlist eiinlega frá frumbernsku og eftir hana liggur grúi tónverka. Mörg eru hljóðfæratónlist, en flest þó samin fyrir rödd eða raddir,…
Samúel Jón Samúelsson komst í kynni við básúnu í tónlistarnámi á Ísafirði og hefur eiginlega ekki lagt hana frá sér síðan. Sem básúnuleikari hefur hann leikið með óteljandi hljómsveitum og tónlistarmönnum og inn á legíó af plötum, aukinheldur sem hann hefur verið iðinn við að semja tónlist og útsetja allskyns músík. Í tilefni af því að þetta er 100. þátturinn af Straumum flytur Samúel Verk fyrir 4 plötuspilara sem var hluti af útskriftarverkefni hans úr tónsmíðanámi í Listaháskóla Íslands haustið 2022, fyrirfram unnin hljóð skorin í hljómplötu út frá gefnum forsendum.

Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson