Mannlegi þátturinn

Farsæld barna, Jónsmessugleði Grósku og húsin á Akureyri

námsleið sem ber yfirskriftina Farsæld barna hefur göngu sína í Háskóla Íslands í haust og barst fjöldi umsókna. Með farsæld er vísað til aðstæðna sem skapa börnum skilyrði til líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðilegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar og í náminu er meðal annars lögð áhersla á samvinnu milli ólíkra aðila sem veita börnum þjónustu. Ragnheiður Hergeirsdóttir, lektor í félagsráðgjöf, kom í þáttinn og sagði okkur frá þessar nýju námsleið farsæld barna.

Jónsmessugleði Grósku, félags myndlistarmanna í Garðabæ verður haldin í þrettánda sinn í kvöld og þemað er ljós og skuggar. Við Strandstíginn í Sjálandshverfi Garðabæjar verða til sýnis fjölbreytileg listaverk en auk sýningarinnar verða alls konar listviðburðir á dagskrá: Tónlist og söngur, dans, leiklist og fleira. Gunnar Júlíusson, stjórnarmaður í Grósku, kom í þáttinn.

Við heyrðum svo í Arnóri Blika Hallmundssyni framhaldsskólakennara við Verkmenntaskólann á Akureyri. Hann hefur skrifað um húsin á Akureyri, mjög fróðlega pistla sem hann hóf birta á bloggsíðu sinni árið 2009. Hann hefur verið sérstakur áhugamaður um húsin fyrir norðan og sögu þeirra frá því hann flutti 12 ára til Akureyrar framan úr Eyjafjarðarsveit. Hann segist hafa einhverja óútskýrða þörf fyrir kynna sér í þaula allt í kringum sig, sögu staðreyndir o.s.frv. og deila þeim fróðleik með öðrum. hefur hann skrifað og deilt fróðleik um 800 hús og nýlega komst hann samkomulagi við akureyri.net, fréttamiðilinn fyrir norðan, um þar birtist greinar eftir hann undir titlinum Hús dagsins. Arnór Bliki var á línunni norðan í þættinum í dag.

Tónlist í þættinum í dag:

Ljúfa vina / Ragnar Bjarnason (Ólafur Gaukur Þórhallsson, Jón Sigurðsson og Indriði G. Þorsteinsson)

En / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir)

Gæfa og gjörvileiki / Spilverk þjóðanna

Húsin í bænum / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarson og Tómas Guðmundsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR

Frumflutt

23. júní 2022

Aðgengilegt til

24. júní 2023
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.