Meirhlutaviðræður í Reykjavík, varatenging Íslands, hagræðingar Landspitala, vaxtamál, Kennedy og sýking í hrossum
Oddvitar Sósíalistaflokksins og Flokk fólksins í Reykjavík segja ólíklegt að nýr meirihluti verði kynntur á borgarstjórnarfundi á þriðjudag. Meirihlutaviðræður héldu áfram í dag.
Stjórnvöld ætla að tryggja netöryggi nauðsynlegra samfélagsinnviða með því að fjármagna varaleið um gervihnetti. Þannig verði starfsemi þeirra ekki raskað ef unnin eru skemmdarverk á sæstrengjum til Íslands.
Landsréttur sýknaði stóru viðskiptabankana í vaxtamálinu svokallaða. Formaður Neytendasamtakanna treystir á Hæstarétt.Robert F.
Kennedy yngri er nýr heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, þrátt fyrir mikla gagnrýni á afstöðu hans til bóluefna og þungunarrofs.
Hross, sem veiktust eða drápust í Landeyjum árið 2022, sýktust þegar verið var að sprauta þau með ormalyfi. MAST varar við því að sprauta hross og ráðleggur hestaeigendum að gefa ormalyf um munn.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Ásrún Brynja Ingvarsdóttir