Segir leitt að lögreglan hafi gert mistök og íbúum Múlaþings brugðið
Utanríkisráðherra Danmerkur brýndi fyrir sendifulltrúa Bandaríkjanna á fundi þeirra í dag að allar tilraunir til að skipta sér af innri málum Danmerkur eða skapa sundrung milli Grænlands og Danmerkur væru með öllu óásættanlegar.
Ríkislögreglustjóri segir mjög leitt að lögreglan hafi gert mistök við rannsókn á ofbeldisbroti í nánu sambandi sem varð til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu taldi að brotið hefði verið á konunni sem kærði.
Tvö börn, átta og tíu ára, eru á meðal þeirra sem skotin voru til bana í kaþólskum skóla í Minneapolis í Bandaríkjunum í dag. Árásarmaðurinn skaut á börn inn um glugga á kapellu skólans.
Fjórða hver kona í sumum árgöngum sem komnar eru yfir sextugt er með örorku. Fyrir örorku bjuggu þær við meira álag á heimili og í vinnu en samanburðarhópar sem eru ekki með örorku.
Sveitarstjórnarmönnum í Múlaþingi er brugðið eftir fund með innviðaráðherra í gær þar sem hann boðaði mögulega uppstokkun á samgönguáætlun og sagðist vera að endurskoða hvaða jarðgöng skuli grafin næst. Þeir hafa óskað eftir fundi með forsætisráðherra.