Fjölþjóðleg samvinna í baráttu við skipulagða glæpastarfsemi, börn og netmiðlar og Reynisfjara
Bein aðild Íslands að fjölþjóðlegum lögreglurannsóknum skiptir miklu máli í baráttunni við skipulagða glæpastarfsemi, segir íslenskur saksóknari hjá Eurojust. 24 voru handteknir í umfangsmiklum lögregluaðgerðum í síðustu viku.
Atvinnuvegaráðherra telur það örþrifaráð að loka Reynisfjöru þegar hætta vofir yfir. Frumvarp til að bæta öryggi á ferðamannastöðum er í bígerð.
Foreldrar aðstoða börn við að stofna reikninga á samfélagsmiðlum. Um 80 prósent barna nota Youtube.
Örorka hjá einstæðum mæðrum eykst eftir fjölda barna á þeirra framfæri segir geðlæknir - samspil veikinda, félagslegrar stöðu og fjárhagslegra hvata sé oft flókið - og erfitt að meta hversu mikil skerðingin til að sinna vinnu er.
Dósent við Háskólann á Akureyri undrast að aðgerðaáætlun háskólaráðherra um fjölmiðla tiltaki eingöngu styrki til blaða- og fréttamennskunáms í Reykjavík ekki fjölmiðlanám á Akureyri.