Kvöldfréttir útvarps

Tap á Icelandair, lágflugsmenn kærðir, vinnuvélabann, dýralæknaskortur og fíknivarnasjóður Samherja

Icelandair tapaði fjórum milljörðum króna eftir skatta á öðrum ársfjórðungi þrátt fyrir tekjur hafi aukist um sjö prósent milli ára. Forstjóri félagsins segir horfur góðar fyrir næsta ársfjórðung og von á töluverðum á hagnaði þrátt fyrir hækkandi eldsneytisverð.

Atvinnuvegaráðherra segir Vinnueftirlitið sinna hlutverki sínu með því banna innflutning á vinnuvélum sem ekki standast kröfur um gæði og öryggi.

Samgöngustofa hyggst kæra tvo flugmenn sem sviptir voru flugréttindum tímabundið vegna lágflugs yfir Vestmannaeyjum í apríl.

Dæmi eru um dýr í neyð fái ekki aðstoð vegna þess dýralæknar fást ekki á bakvakt. Formaður Dýralæknafélagsins segir fólk ekki tilbúið sætta sig við launin.

Formaður SÁÁ telur með fjárstuðningi frá nýjum átakssjóði gegn fíkniefnum verði hægt gera enn betur í aðstoð við aðstandendur ungmenna í fíknivanda.

Umsjón: Ásrún Brynja ingvarsdóttir

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Birt

21. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,