Trump segist ekki þurfa aðstoð og innviðir helsta skotmarkið
Bandaríkjaforseti segist hvorki þurfa né vilja aðstoð annarra ríkja við að tryggja öryggi flutningaskipa um Hormússund vegna mögulegra árása Írana. Hann hefur síðustu daga beðið nokkur ríki um aðstoð við dræmar undirtektir.
Innviðir væru helsta skotmarkið ef árás yrði gerð á landið að sögn utanríkisráðherra. Stjórnvöld verði að vinna með einkageiranum að því að efla áfallaþol samfélagsins.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt hald á fimm bíla vegna gruns um brot á tollalögum og skjalafals. Talið er að bílarnir hafi verið teknir í sundur og verið sagðir nýttir í varahluti.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum.
Búist er við að almyrkvi á sólu í ágúst laði fjölda ferðamanna að Látrabjargi. Unnið er að skipulagningu til að bregðast við og styrkja innviði.