Kerfið brást drengjunum sem voru vistaðir á fósturheimilinu í Bakkakoti á Suðurlandi, segir forsætisráðherra. Nokkrir úr hópi þeirra sem voru vistaðir þar segjast hafa orðið fyrir miklu ofbeldi.
Aðalhagfræðingur Arion banka segir ekki neina eina skýringu á hvers vegna einkaneysla Íslendinga hafi aukist á síðasta ári og þeir sett met í utanlandsferðum á sama tíma og verðbólga hafi verið þrálát og stýrivextir áfram háir. Verðtrygging vegi þó þungt.
Marius Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar, kennir stöðugri leit að viðurkenningu annarra um gjálífi sitt og fíkniefnaneyslu síðustu ár. Hann neitaði að hafa nauðgað fjórum konum, þegar hann gaf skýrslu fyrir dómara í dag.
Reykjavíkurborg dregur lappirnar varðandi aðgerðir í leikskólamálum að mati stjórnenda leikskóla borgarinnar. Einn þeirra óttast að sífellt fleira leikskólastarfsfólk segi upp störfum að óbreyttu.