Kvöldfréttir útvarps

Eftirlit bætt eftir Bakkakots-mál og íþyngjandi meðferð við leyndum berklum

Bæta á eftirlit með fósturheimilum og rannsaka málefni Bakkakots, í kjölfar umfjöllunar Kveiks í vikunni, sem ráðherrar segja hafa verið sláandi.

Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað starfsmenn af öllum ásökunum um hafa ranglega skráð sig sem meðhöfunda fræðigreinum. Deilt er um hversu mikil sátt felst í niðurstöðunni.

Meðferð við leyndum berklum er mjög íþyngjandi, segir formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Það geti ekki verið tilviljun þeir starfsmenn Landspítalans sem greindust hafi allir unnið á bráðamóttökunni.

Norska krónprinsessan Mette-Marit ítrekaði í dag afsökunarbeiðni vegna samskipta við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein.

Samfélagsmiðillinn TikTok hefur gefið Evrópusambandinu puttann vegna gagnrýni þess á hönnun miðilsins.

Birt

6. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,