Tollurinn hefur stöðvað stórar sendingar af ólöglegu peptíði sem er markaðssett fyrir unglinga til að líta betur út. Einn hefur leitað á eitrunarmiðstöð eftir að hafa sprautað sig með efninu.
Velferðarsvið Kópavogs hefur beðið fjölskyldu drengs sem vistaður var í Bakkakoti afsökunar. Upplýsingar um slæman aðbúnað í Bakkakoti hafi legið fyrir en ekki hafi verið brugðist við.
Íslensk stjórnvöld ætla að leggja til átta hundruð milljónir króna í orkutengda sjóði til að aðstoða við uppbyggingu innviða í Úkraínu - sem eru lamaðir eftir árásir Rússa.
Róttækar breytingar verða á lista Sjálfstæðisflokksins í borginni fyrir kosningarnar í vor. Fjórir borgarfulltrúar missa jafnvel öruggt sæti.
Gló styrktarfélag segir nauðsynlegt að fella niður Ævintýrabúðir og Vinahópa Reykjadals í sumar, þar sem fjármagn hefur ekki fengist