Kona sem var sakfelld og dæmd í tólf ára fangelsi í Edition-málinu í dag gengur enn laus. Hún hefur áfrýjað dómnum.
Sveitarstjóri Húnaþings óttast að fækkun lögregluembætta verði til þess að lögreglustöðvum fækki, þvert á loforð um hið gagnstæða.
Sveitarfélaginu Skagafirði hafa borist tilkynningar um hugsanlega mengun í Sauðá á Sauðárkróki.
Rannsóknarboranir Carbfix á Grundartanga eru á byrjunarstigi og ganga vel að sögn framkvæmarstjóra fyritækisins.
Skylt verður að nota einsleitar umbúðir utan um tóbaksvörur samkvæmt drögum að frumvarpi. Slíkar umbúðir hafa verið notaðar í Noregi í tæpan áratug.
Umsjón: Alexander Kristjánsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir
Fréttir