Kvöldfréttir útvarps

Hækkun virðistaukaskatts á baðlón, áfengisneysla unglinga, stækkun þyrlupallsins á Surtsey og andlát Steins Ármanns Magnússonar leikara

Fjármálaráðherra telur virðisauka-skatts-hækkun á baðlón eigi eftir skila allt fjórum milljörðum króna á ári í ríkissjóð. Samtök ferðaþjónustunnar hafa gagnrýnt áformin harðlega.

Áfengisneysla unglinga á Menningarnótt kemur framkvæmdastjóra Samfés ekki á óvart. Starfsfólk félagsmiðstöðva hafi lengi varað við aukinni drykkju meðal unglinga.

Steinn Ármann Magnússon ruddi brautina með nýrri tegund af gríni, með uppistandi sem fáir höfðu lagt á sig, segir Davíð Þór Jónsson, æskuvinur Steins. Steinn Ármann lést á föstudag.

Tilfellum þungunarrofs hefur fjölgað í Danmörku frá því lög, sem heimila rjúfa þungun fram átjándu viku meðgöngu, tóku gildi í fyrra.

Þyrlupallurinn í Surtsey verður næstum þrefaldaður stærð, samkvæmt áformum Surtseyjarfélagsins, sem Vestmannaeyjabær hefur samþykkt.

Birt

23. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,