
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Flokkarnir lengst til hægri og vinstri fögnuðu sigri í fylkiskosningum í Þýskalandi í dag. Flokkur kanslarans er hársbreidd frá að þurrkast út af þingi eins sambandslandanna.
Íþróttir eru besta forvörnin, segir forseti ÍSÍ, sem vill sporna við ofsaakstri í umferðinni með auknu aðgengi ungs fólks að akstursíþróttum.
Nýtt fagráð um öryggismál á Sólheimajökli hefur tekið til starfa. Veðurstofan varaði við hættulegum aðstæðum þar í sumar.
Innviðaráðuneytið íhugar að deila upplýsingum með fyrirtækjum sem rukka bílastæðagjöld – til að koma í veg fyrir að hreyfihamlað fólk sé rukkað, þrátt fyrir að eiga rétt á að leggja frítt.
Tveir þýskir karlmenn voru handteknir í Louvre-safninu í París eftir að þeir hengdu tvö málverk á vegg sýningarsalarins þar sem Mona Lisa er til sýnis.

Fréttir