Snarpur skjálfti við Hengil, vendingar í þjóðarpúlsi og 3.500 hafa fallið í Líbanon í árásum Ísraelshers
Snarpur jarðskjálfti reið yfir við Hengil í dag og fannst víða á Suð-vesturhorninu. Rúmlega 700 jarðskjálftar hafa mælst þar síðan í gærmorgun.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Samfylkingin stendur í stað, en Flokkur fólksins tapar fylgi.
370 var sagt upp í fjórum hópuppsögnum í maí.
Ísraelsher hefur skipað íbúum í úthverfum Beirút að yfirgefa heimili sín, óljóst er hvert fólk getur flúið. Íslensk stjórnvöld kalla eftir því að Ísrael virði fullveldi Líbanons og landamæri.