Kvöldfréttir útvarps

Mengun skemmtiskipa, tíð innbrot í FS, morð í Svíþjóð, brotthvarf Baldurs og snemmbúnir farfuglar

Stórt skemmtiferðaskip sem liggur við bryggju getur mengað á við fimm þúsund bíla. Mengun við Reykjavíkurhöfn hefur mælst margfalt yfir alþjóðlegum viðmiðum.

Óviðkomandi brjótast reglulega inn og gera sig heimakomna á stúdentagörðum í Reykjavík. Félagsstofnun stúdenta bregst aðeins við skipulögðum eða ítrekuðum innbrotum.

Átta manns liggja undir grun um morð eða morðtilraun eftir maður lést í slagsmálum í Svíþjóð í síðustu viku.

Færsla Breiðarfjarðarferjunnar Baldurs í sumar hefur verið reiðarslag fyrir ferðaþjónustu í Stykkishólmi segir veitingamaður.

Farfuglar koma jafnaði fyrr til landsins en áður, þetta kemur fram í nýrri vísindagrein. Rúm 80% talinna tegunda hafa flýtt komu sinni milli ára.

Umsjón og stjórn útsendingar: Ásta Hlín Magnúsdóttir

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Birt

15. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,