Meirihlutaviðræður í borginni, þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður og samgöngur til Vestmannaeyja
Oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík ræddi við oddvita allra flokka í borgarstjórn í dag en lætur ekki uppi hvaða meirihluta fyrst verði reynt að mynda. Meirihlutaviðræður þokast áfram víða um land.
Utanríkisráðherra segir stjórnarandstöðuna beita leikjafræði til að gera fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu tortryggilega. Formaður Miðflokksins segir að málið þurfi að ræða ítarlega í þingsal.
Innviðaráðherra segir nýtt sanddæluskip koma til með að breyta ýmsu um samgöngur til Vestmannaeyja. Nú sé beðið eftir niðurstöðu Straumfræðistofnunar, til að kanna hvaða lausnir komi til greina vegna Landeyjahafnar.
Útvarpsstjóri moldóvska ríkisútvarpsins sagði af sér í dag vegna harðrar gagnrýni á störf dómnefndar þess í Eurovision. Mikil óánægja var með að hún gaf Póllandi og Ísrael flest stig.