Grunaður um aðild að ráni bæði í Mosfellsbæ og í Hamraborg, Ísraelar ætla að kljúfa Vesturbakkann með landtökbyggð
Lögregla hefur krafist gæsluvarðhalds yfir manni sem grunaður er um að hafa tekið þátt í hraðbankaráni í Mosfellsbæ aðfaranótt þriðjudags. Maðurinn gaf sig fram við lögreglu hann hefur líka stöðu sakbornings í Hamraborgarráninu í Kópavogi í fyrra.
Ísraelsstjórn hefur samþykkt ólöglega uppbyggingu á palestínsku landi sem skilur að Vesturbakkann og Jerúsalem. Varalið hefur verið kallað út til að hertaka Gazaborg.
Norskir kafarar fundu enga líklega eldislaxa í ám á Norðvesturlandi sem þeir leituðu í í dag.
Samtök atvinnulífsins segja að stjórnvöld hafi ekki staðið við fyrirheit um vaxtalækkun og aðhald í ríkisfjármálum sé minna en hjá síðustu stjórn. Þau búast ekki við að vextir lækki í bráð.
Á þriðja þúsund félagsmenn í Eflingu sem starfa á hjúkrunaheimilum eru enn samningslausir eftir að Efling sagði upp samingum í vor vegna þess að ekki var bætt við mönnun. Formaður Eflingar segir erfitt að uppfylla mönnunarskilyrði en bindur vonir við að deilan leysist.