Reynt að spilla morðrannsókn, Úkraína, dvalarleyfisreglur, gróðureldar, hætta á golfvelli og heljarinnar hengibrú
Þrýst var á nítján ára sakborning að taka á sig alla sök fyrir að hafa misþyrmt og banað öldruðum karlmanni sem numinn var á brott af heimili sínu í Þorlákshöfn í mars. Einnig var reynt að hafa áhrif á hann í gegnum nána aðstandendur hans.
Bandarísk stjórnvöld ætla að leggja háa tolla á helstu viðskiptaríki Rússlands. Í dag var tilkynnt að fimmtíu prósenta tollar yrðu lagðir á varning frá Indlandi.
Forseta Alþýðusambandsins og formanni Eflingar líst vel á hertar reglur um dvalarleyfi fyrir fólk utan EES-svæðisins sem dómsmálaráðherra boðar. Þau taka ekki undir gagnrýni formanns VR.
Ekkert lát er á gróðureldum í suðvesturhluta Frakklands. Einn er látinn og tuttugu og fimm heimili eru brunarústir einar.
Litlu munaði að golfvallarstarfsmaður í Þorlákshöfn fengi golfkúlu í höfuðið eftir högg kylfings í gær. Vallarstjóri segir marga kylfinga skorta virðingu fyrir starfsmönnum.
Lengsta hengibrú í heimi verður reist milli Sikileyjar og meginlands Ítalíu, í þeirri von að glæða efnahagslífið í suðurhluta landsins.
Umsjón: Andri Yrkill Valsson og Ævar Örn Jósepsson