Sjálfstæð Palestína, Ísraelum mótmælt, ágreiningur á Alþingi, landris, andófskona í fangelsi
Bretar ætla að að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki í september, líkt og Frakkar, að uppfylltum skilyrðum. Utanríkisráðherra segir að yfirlýsingar Breta og Frakka sýni að alþjóðlegur þrýstingur sé að skila sér.
Þótt hungrið á Gaza hafi ekki verið formlega skilgreint sem hungursneyð, þá er hún staðreynd engu að síður og bitnar harðast á börnum og öldruðum.
Flest bendir til þess að framundan sé átakavetur á Alþingi. Djúpstæður ágreiningur er á milli þingmanna stjórnar og stjórnarandstöðu um mörg grundvallarmál eins og öryggis- og varnarmál og stöðu umsóknar Íslands að ESB.
Nýjustu aflögunarmælingar benda til þess að landris sé hafið á ný í Svartsengi. Virkni í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni hefur farið minnkandi en hraunrennslið getur verið ósjáanlegt á yfirborði.
Rússneskur blaðamaður var dæmdur í tólf ára fangelsi í dag fyrir tengsl við stofnun stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalnys, sem lést í fangelsi í fyrra.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir og Ævar Örn Jósepsson